Þessi bók fjallar um leynda valdaþræði, kerfislæga spillingu og misbeitingu valds.
Hún afhjúpar skuggabaldrana í samfélagi okkar og skúmaskotin þar sem þeir leynast.
Þetta er æsispennandi pólitískur þriller – en hér er enginn skáldskapur á ferðinni. Blákaldur íslenskur veruleiki!
Segir í kynningu á bókinni.
Í bókinni er fjallað um afkomuofbeldi, spillingu, frændhygli og flokkadrætti í íslenskum stjórnmálum og atvinnulífi, sumpart af eigin reynslu Ólínu, sem fékk meðal annars 20 milljóna króna bótagreiðslu frá íslenska ríkinu fyrr á þessu ári í kjölfar þess að kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar gengið var fram hjá henni við skipan þjóðgarðsvarðar árið 2018.
Ólína greinir einnig frá því hvernig forstjóri Samherja Þorsteinn Már Baldvinsson hafi hindrað ráðningu sína sem forseta hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri árið 2013.
Auk eigin reynslu rekur Ólína fjölmörg dæmi af fólki sem telur að stjórnmálaskoðanir sínar, eða aðrar sem féllu ekki í kramið hjá áhrifafólki í stjórnmálum og viðskiptum, hafi orðið til þess að það hafi verið svipt tækifærum til að afla sér lífsviðurværis.