Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson í 14 daga leiðangri í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi

Um þessar mundir er rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson í 14 daga leiðangri í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi. Um borð er unnið að fjölbreyttum verkefnum og stöðvar teknar með rækjuvörpu, sjótaka, botngreip, botnkjarnataka eða neðansjávarmyndavél.
Eftirfarandi verkefni eru í gangi:

Stofnmæling rækju
Frá árinu 1988 hefur verið farið árlega í leiðangra til að meta stofnstærð rækju. Niðurstöður úr mælingunum eru notaðar til að veita stjórnvöldum ráðgjöf um veiðar á innfjarðarækju. Ýmsum öðrum upplýsingum er safnað, meðal annars um útbreiðslu, magn og lengd allra fisktegunda í báðum fjörðunum og einnig er afrán þorsks, ýsu og lýsu kannað.

Umhverfisáhrif sjókvíaeldis
Til að meta áhrif fiskeldis á lífríki botnsins er upplýsingum safnað í botngreipar og með myndavélum þriðja árið í röð en mælingar munu nú nær eingöngu fara fram í Arnarfirði. Með slíkri árlegri vöktun fást upplýsingar um þéttleika og samsetningu botndýra á fjarsvæðum eldissvæða og breytingar sem þar gætu orðð. Að auki eru botnkjarnar teknir og súrefni, brennisteinsmagn og sýrustig mælt úr setinu til að meta ástand þess.

Umhverfisrannsóknir
Árið 2001 hófst ítarleg kortlagning hitafars og seltu í þessum tveim fjörðum. Þá voru settar út sérstakar stöðvar þar sem árlega hefur verið safnað upplýsingum um hitastig og seltu sjávar. Á undanförnum árum hafa einnig verið gerðar mælingar á styrk súrefnis og næringarefna.

Rannsóknir á ungþorski
Haldið verður áfram með merkingar á þorski en átak var gert í þorskmerkingum árin 2019 og 2020. Inn á fjörðum er einblínt á merkingar á ungþorski til að meta hversu lengi hann dvelst inn í fjörðunum.

Leiðangursstjóri er Ingibjörg G. Jónsdóttir. Hægt er að fylgjast með ferð skipsins á vef Hafrannsóknastofnunar.

DEILA