Dynjandi

Dynjandi í Dynjandisvogi í botni Arnarfjarðar er einn tilkomumesti foss landsins

Fossinn og umhverfi hans var friðlýst sem náttúruvætti árið 1981, enda um einstaka náttúruperlu að ræða.

Dynjandi er í ánni Dynjandi sem rennur ofan af Dynjandisheiði.

Hún á upptök sín í nokkrum vötnum á heiðinni sem liggur í jaðri hálendissvæðis Glámu. Glámusvæðið einkennist af jökulruðningum og dældum sem smávötn hafa safnast í.

Dynjandi fellur niður u.þ.b. 100 metra hátt og bungumyndað berg. Fossastiginn hefur orðið til vegna lagskiptingar bergsins í hraunlög og lausari millilög. Fossberarnir eru hraunlögin en millilögin hefur áin grópað undan þeim.

Fossarnir í Dynjanda eru sex. Efst er Fjallfoss, þá Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss.

Leiðrétting
Röð fossanna í Dynjanda var fengin af vefsíðu Markaðsstofu Vestfjarða. Ekki eru allir þessari röð sammála.
Í bókinni Fólk og firðir 900-1900 Vestur Ísafjarðarsýsla eftir Kjartan Ólafsson er röð fossanna talin þessi Dynjandi, Hæstahjallafoss, Strompgljúfrafoss eða Strompur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss, Hundafoss, og Bæjarfoss sem einnig hefur verið nefndur Sjóarfoss.

DEILA