Tálknafjarðarskóli plokkar

Stóri plokkdagurinn var dagsettur 25. apríl en vegna ástandsins í samfélaginu ákvað Tálknafjarðarskóli að fresta deginum.

Á plokkdegi eru allir hvattir til þess að fara út og plokka eða týna rusl í sínu nærumhverfi.

Það er hópurinn Plokk á Íslandi sem stendur fyrir deginum.

Grænfánanefnd Tálknafjarðarskóla bauð íbúum á Tálknafirði að þátt í þessu verkefni laugardaginn 16. maí síðastliðinn og var vel mætt.

Kristinn Hilmar Marinósson kom færandi hendi með fjölnota poka til að týna í og vigtaði síðan allt það rusl sem var týnt. Alls vó það 637 kíló.

Í lokin var boðið upp á kræsingar sem var vel þegið eftir góðan dag í plokki.

DEILA