UPPBYGGING VIÐ SUNDSTRÆTI Á ÍSAFIRÐI

Sundstræti skömmu eftir að byrjað var að byggja á uppfyllingu sjávarmegin við götuna, líklega 1976 eða 1977.

Þann 10. janúar 1964 var lagður fram í byggingarnefnd Ísafjarðarkaupstaðar tillöguuppdráttur að skipulagi og staðsetningu tvíbýlishúsa sjávarmegin við Sundstræti.
Uppdrátturinn gerði ráð fyrir sjö tvíbýlishúsum á svæðinu milli Norðurtanga h.f. og niðursuðuverksmiðju Ole N. Olsen.

Meirihluti byggingarnefndar lagði til að eftirtaldar breytingar yrðu gerðar á tillöguuppdrættinum: a) Gerður yrði 5 m breiður gangstígur meðfram sjónum og lóðirnar styttar sem því næmi. b) Bifreiðageymslur yrðu færðar ca. 6 m innar í lóðirnar, þannig að bifreið gæti staðið framan við þær. c) Lóðirnar yrðu ca. 1 m hærri en gert væri ráð fyrir á uppdrættinum.
Voru tillögur nefndarinnar samþykktar á bæjarstjórnarfundi skömmu síðar.

Heimild: Ísfirðingur 28. janúar 1964
Mynd og texti er frá Ljósmyndasafni Ísafjarðar

DEILA