Fyrirtækjakönnun landshlutanna árið 2019

Vestfjarðastofa er þátttakandi í fyrirtækjakönnun landshlutanna sem Vífill Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hefur unnið um nokkurra ára skeið. Könnunin hefur verið send út á fyrirtæki á svæðinu, allt frá einyrkjum til stærri fyrirtækja. Í könnuninni er leitað eftir viðhorfi forsvarsmanna fyrirtækja á landsbyggðinni til núverandi stöðu þeirra og framtíðarhorfa.

Þátttaka í könnuninni var góð á Vestfjörðum í fyrra og veitti gagnlegar upplýsingar.

Í ár lítur hins vegar út fyrir að hún verði mjög dræm. Upplýsingarnar eru mikilvægar til þess að sjá hvar styrkleikar og veikleikar atvinnulífs á Vestfjörðum liggja og er liður í að bæta þjónustu gagnvart fyrirtækjum á svæðinu.

Forráðamenn fyrirtækja er hvattir til að taka þátt svo unnt sé að fá góða mynd af stöðunni á Vestfjörðum.

DEILA