Vegagerðin hefur kynnt drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vestfjarðarvegi um Dynjandisheiði og á Bíldudalsvegi frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðarvegi á Dynjandisheiði. Markmið framkvæmdarinnar er að opna heilsárshringveg um Vestfirði með því að bæta samgöngur um Vestfjarðaveg milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða og um Bíldudalsveg milli Bíldudals og Vestfjarðavegar. Í drögunum segir að með vegabótum sem fylgja Dýrafjarðargöngum, sem til stendur að byrja á í haust, verði miklar vegabætur á Vestfjarðavegi. Þær nýtist þó ekki að fullu fyrr en lagður hefur verið heilsárvegur um Dynjandisheiði, suður frá Dýrafjarðargöngum, með tengingu við Bíldudal.
Núverandi vegur yfir Dynjandisheiði er 41,1 km langur en gert er ráð fyrir að nýr vegur verði 35,4-39,2 km langur, háð leiðarvali. Núverandi Bíldudalsvegur er 29,1 km langur en gert er ráð fyrir að nýr vegur verði aðeins styttri.