Landvörður í friðlandinu í Vatnsfirði mun leiða fossagöngu í Vatnsdal laugardaginn 1. júlí kl: 13:00
Þar er fjöld fagurra fossa sem þáttakendur munu þræða á göngu sinni um dalinn. Gengið verður um grösugan flata, í þéttu birkikjarri og á gljúfurbökkum.
Þátttakendur hittast rétt fyrir klukkan 13:00 á bílastæði við Lómatjarnir við Vatnsdalsvatn þar sem sameinast verður í bíla áður en keyrt er inn í Vatnsdal.
Gangan hefst við bílastæði í botni dalsins.