Markaðsrannsóknir í Vísindaporti

Föstudaginn 27. Janúar mun Högni Friðriksson flytja erindið „Product/Market Fit. Markaðsrannsóknir fyrir nýjar vörur og þjónustu “ í Vísindaporti Háskólaseturs Vestfjarða.

Product/Market fit er hugtak sem er mikið notað í sprotafyrirtækjum í Bandaríkjunum og að gera markaðsrannsóknir til að finna product/market fit er skilyrði fyrir styrkveitingum úr National Science Foundation sem fjármagnar mörg nýsköpunarverkefni úr háskólum í BNA.

Högni mun kynna þessa aðferðafræði og sýna dæmi um hvernig slíkar rannsóknir fara fram.

Högni útskrifaðist me B.Sc í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands 1996 og MBA í Markaðsfræði og Stjórnun í Heilbrigðisgeiranum 2003 frá Duke University. Hann hefur starfað við markaðssetningu og vörustjórnun bæði fyrir fyrirtæki og sem sjálfstæður ráðgjafi í Bandaríkjunum síðustu 20 ár en flutti til Ísafjarðar í júlí 2022 og starfar nú sem sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Vestfjarða og kennir jóga í Silfurtorgi Jógastúdió.

Vísindaportið er opið öllum og hefst stundvíslega klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs.

DEILA