Einungis sýslumenn kanna hjónavígsluskilyrði

Frá og með 1. september 2022 þurfa allir sem ætla að ganga í hjúskap hér á landi að óska eftir könnun á hjónavígsluskilyrðum hjá sýslumanni, nema könnun hafi þegar farið fram fyrir þann tíma og vottorðið er ekki eldra en 30 daga þegar hjónavígsla fer fram.

Mikilvægt er að senda beiðnina til sýslumanns með hæfilegum fyrirvara áður en hjónavígsla fer fram, en að jafnaði tekur um 5 virka daga að ljúka við könnun hjónavígsluskilyrða. Greiða þarf kr. 4.500 kr. fyrir vottorðið. Athugið að við greiðslur erlendis frá geta bæst þjónustugjöld banka.

Könnun hjónavígsluskilyrða, áður en hjónavígsla fer fram, verður nú ekki lengur á hendi presta eða forstöðumanna trú- og lífskoðunarfélaga og umboðsmanna þeirra og gildir einu hvort hjónaefni eiga lögheimili hér á landi eða ekki.

Vígsluheimildir presta og forstöðumanna trú- og lífsskoðunarfélaga og umboðsmanna þeirra verða óbreyttar, þannig að hjónaefni geta áfram valið hver framkvæmir hjónavígsluna, en þau þurfa að leita til sýslumanns fyrst til þess að kanna hvort hjónavígsluskilyrði séu uppfyllt. 

Útgáfa könnunarvottorðs sýslumanns er forsenda þess að hjónavígsla megi fara fram.

DEILA