Ákvörðun um breytingu á starfsleyfi Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun að gefa út breytingu á starfsleyfi Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði.

Breytingin felur í sér heimild til notkunar áæsætuvarna.

Einnig voru gerðar breytingar og uppfærslur á leyfinu til samræmis við nýjustu leyfi sem gefin eru út af stofnuninni, allar breytingar má sjá í hornklofum í leyfinu.

Tillaga að breyttu leyfi var auglýst á tímabilinu 24. júní 2022 til og með 25. júlí 2022 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar.

Engin athugasemd barst vegna tillögunnar á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Breytt starfsleyfi Arctic Sea Farm hf. Dýrafirði

DEILA