Nú er nóvembermánuður hálfnaður og hefur hann verið fremur svalur, samkvæmt upplýsingum Trausta Jónssonar veðurfræðings. Meðalhiti í Reykjavík er +1,5 stig, -0,5 neðan meðallags 1961-1990, en -2,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ár. Nóvember hefur þó tvisvar á öldinni byrjað kaldari í Reykjavík en nú, árin 2005 og 2010. Hlýjast var árið 2011. Á langa samanburðarlistanum er mánuðurinn nú rétt neðan við miðju, í 78. sæti af 142. Fyrri hluti nóvember var hlýjastur árið 1945 (8,2 stig), en kaldastur 1969 (-2,6 stig). Meðalhiti var undir meðallagi á öllum veðurstöðvum landsins, minnst í Seley, -0,8 stig, en mest í Veiðivatnahrauni, -3,9 stig.
Trausti skrifar að hita er spáð undir meðallagi næstu daga „svo það verður trúlega þungur róður fyrir mánuðinn að ná meðallagi hvað hita varðar.“
smari@bb.is