Sjálfbær fiskveiði í heilbrigðu hafi er samstarfsverkefni Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Færeyja, Íslands, Litháen og Noregs.
Tilgangur verkefnisins er að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum með hliðsjón af loftslagsbreytingum og grænum áherslum. Áhersla er lögð á rannsóknir á áhrifum fiskveiða á umhverfi sjávar og möguleikum til draga úr áhrifum veiðanna.
Norræna rannsóknaráðið (NordForsk), sem er rekið á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, leggur fram fjármagn til verkefnisins. Heildarráðstöfunarfé nemur 40 milljónum norskra króna eða um 518 milljónum íslenskra króna.
Verkefnið samræmist í senn sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlanda frá 2022.
Umsóknarfrestur er til 28. maí n.k.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Norræna rannsóknaráðsins.