Grásleppa fyrir 1100 milljónir

Samtals námu útflutn­ings­verðmæti á frystr­i grásleppu, söltuðum grá­sleppu­hrogn­um og grá­sleppuka­ví­ar um 1,1 millj­arði króna á fyrstu tíu mánuðum árs­ins og er það um 20% aukn­ing frá síðasta ári.

Landsamband smábátaeigenda hefur tekið saman upp­lýs­inga úr tölum Hag­stofu Íslands og þar kem­ur fram að út­flutn­ings­verð á hvert kíló af fros­inni grá­sleppu var á fyrstu tíu mánuðum þessa árs 94% hærra en á sama tíma­bili í fyrra auk þess sem magn hef­ur auk­ist um 45%.

Út­flutn­ings­verð grá­sleppuka­ví­ars hækkaði um 21% og útflutn­ings­verð á tíma­bil­inu mars til októ­ber var um 105 þúsund kr. fyr­ir hverja tunnu af grásleppu­hrogn­um.

Alls stunduðu 166 bát­ar grá­sleppu­veiðar á vertíðinni 2023 og nam afli þeirra 3.797 tonn­um sem er um 12% minna en árið 2022.

Veiðileyfi hvers báts tak­markaðist við 45 daga og fjölgaði um 20 milli ára, en um er að ræða lengsta veiðitíma­bil frá upp­hafi og stóð frá 20, mars til 31. ág­úst. Tíma­bilið var þó leng­ra á inn­an­verðum Breiðafirði og hóf­ust veiðar þar að venju 20. maí.

Þrátt fyr­ir fjölg­un veiðidaga og leng­ingu tíma­bils tókst ekki að ná þeim 4.411 tonn­um sem heim­ilt var að veiða. Ákvörðun um heild­arafla er byggð á ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar en stofn­vísi­tal­an hef­ur farið lækk­andi frá metár­inu 2021.

DEILA