Sjávarbyggðir í Japan

Seira Duncan mun halda fyrirlestur miðvikudaginn 8. nóvember kl. 13.00 í kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða.

Fyrirlestur hennar fjallar um sjávarbyggðir í Japan og hennar persónulega upplifun sem Ryukyuan (Okinawan) frumbyggjahóp.

Hún er fyrsti fræðimaðurinn til að dvelja í Grímshúsi og vinnur þar við verkefni sitt “Andleg vellíðan meðal frumbyggjasamfélaga á Norðurslóðum á tímum loftslagsbreytinga”.

Hún er doktorsnemi við Háskóla Austur Finnlands og stundar rannsóknir á Grænlandi og er í rannsóknarhóp tengdum norðurslóðum “International Arctic Science Consortium”.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

DEILA