Ný bók : Björn Pálsson – flugmaður og þjóðsagnapersóna

Út er komin bók um Björn Pálsson flugmann eftir Jóhannes Tómasson. Útgefandi er bókaútgáfan Hólar.

Björn Pálsson var frumkvöðull í sjúkraflugi á Íslandi. Hann vann marga hetjudáðina og var kallaður „bjargvættur landsbyggðarinnar“ en hann var oft eina lífsvon sjúkra og slasaðra úti á landi.

Hann fór í loftið þótt veðurútlitið væri allt annað en gott til flugs, svo ekki sé nú minnst á lendingarstaðina sem sumir voru varla meira en „lófastærð“.

Í þessari bók er einstakur flugmannsferill Björns Pálssonar rakinn í máli og myndum. Greint er frá ótrúlegum björgunarafrekum hans, fjölbreyttum verkefnum og flugvélunum tólf sem hann átti.

DEILA