Sameining: Vesturbyggð samþykkti

Frá Vatneyrinni á Patreksfirði. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Sameining sveitarfélaganna Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepps var samþykkt í Vesturbyggð. Þar greiddu 442 atkvæði og 804 voru á kjörskrá. Kjörsókn var 55%.

Já sögðu 364 eða 82,4%, nei sögðu 73 eða 16,5%. Auðir seðlar voru 4 og einn var ógildur.

Sameiningin hefur því einnig verið samþykkt í Vesturbyggð.

DEILA