Sameining: Tálknafjörður samþykkti

Tálknafjörður.

Kjörstjórn í Tálknafirði hefur tilkynnt um úrslit kosninganna um sameiningu Tálknafjarðar við Vesturbyggð.

Á kjörskrá voru 201 og 145 greiddu atkvæði.

Já sögðu 139, nei sögðu 5 og einn seðill var auður.

Sameiningin var því samþykkt með 90% greiddra atkvæða og 69% þeirra sem voru á kjörskrá.

DEILA