Kvennaverkfall 24. október

Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks blása til heils dags kvennaverkfalls þann 24. október næstkomandi. Konur og kvár sem geta munu þá leggja niður störf.

Alþýðusamband Íslands er á meðal þeirra samtaka sem efna til kvennaverkfalls 24. október. Boðað er til allsherjarverkfalls; konur eru hvattar til að mæta ekki til vinnu, annast ekki börnin, standa ekki „þriðju vaktina” og eftirláta körlunum að sinna heimilinu, börnunum, eldra fólkinu og öllu hinu meðfram sinni fullu vinnu.  

Á þeim tæplega 50 árum sem liðin eru frá fyrsta kvennaverkfallinu hefur vissulega náðst markveður árangur í jafnréttismálunum. Ennþá er samt langt í land.  

  • Atvinnutekjur kvenna eru enn 21% lægri en karla og hefðbundin kvennastörf eru talsvert verr launuð en karlastörf.
  • Fólk sem starfar við ræstingar, umönnun og menntun barna og þjónustu við sjúka og aldraða myndar láglaunahópa í samfélaginu.
  • Atvinnuþátttaka kynjanna er svipuð — en konur bera langmesta ábyrgð á heimilishaldi og umönnun.

Við bíðum ekki lengur – og krefjumst aðgerða strax! 

ASÍ stendur að Kvennaverkfallinu 2023 ásamt eftirfarandi: 

Aflið (Akureyri) 
Bandalag kvenna í Reykjavík 
BHM – Bandalag háskólamanna 
BSRB 
Druslugangan 
Druslubækur og Doðrantar 
Delta Kappa Gamma, félag kvenna í fræðslustörfum 
Femínísk fjármál 
Femínistafélag HÍ 
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga 
Félag um Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi 
Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna 
IceFemin 
Kennarasamband Íslands 
Knúz.is 
Kvenfélagasamband Íslands 
Kvennahreyfing ÖBÍ 
Kvennaráðgjöfin 
Kvennasögusafn Íslands 
Kvenréttindafélag Íslands 
Rótin 
Samtök um kvennaathvarf 
SSF – Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja 
Samtökin ’78 
Soroptimistasamband Íslands 
Stígamót 
UN Women Ísland 
Ungar athafnakonur 
WIFT – Konur í kvikmyndum og sjónvarpi 
W.O.M.E.N. in Iceland – Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi 
Q – félag hinsegin stúdenta 

DEILA