Ísafjörður: Kringlur 50% dýrari í nettó en í Bónus

Poki með 5 kringlum sem bakaðar eru á Ísafirði kostuðu 50% meira í Nettó en í Bónus. Samkvæmt verðmiðum sem Bæjarins besta hefur fengið kostuðu kringlurnar 1.049 kr. í Nettó en 698 kr. í Bónus. Verðmunurinn verður ekki skýrður með flutningskostnaði.

Bæjarins besta hefur óskað eftir skýringum frá Nettó á þessu verðmun, en svör hafa ekki borist.

DEILA