Mast: 27 eldislaxar greindir

Frá laxeldi í Patreksfirði.
Frá laxeldi í Patreksfirði.

Matvælastofnun hafa borist upplýsingar um upprunagreiningu Hafrannsóknastofnunar á 34 löxum. Sjö þeirra, sem allir voru veiddir í Mjólká, reyndust vera villtir en 27 eldislaxar.

Einn eldislaxinn var ekki hægt að rekja til ákveðins eldis en 26 laxa var hægt að rekja til sex hænga sem voru notaðir til framleiðslu á seiðum sem sett voru út á eldissvæði Arctic Sea Farm við Kvígindisdal í Patreksfirði haustið 2021. Tveir af þessum sex hængum voru einnig notaðir til framleiðslu á seiðum sem sett voru út á eldissvæði Arnarlax við Tjaldanes í Arnarfirði haustið 2021.

Eldislaxarnir 27 veiddust, skv. frétt Matvælastofnunar, í  Patreksfirði (6), Örlygshöfn (2), Sunndalsá (6), Mjólká (1), Laugardalsá (1), Ísafjarðará (1), Selá í Ísafjarðardjúpi (2), Miðfjarðará (1), Hópinu (1), Víðidalsá (1), Vatnsdalsá (3), Laxá í Dölum (1) og Staðarhólsá/Hvolsá (1).

Samkvæmt þessu veiddust 19 laxanna á Vestfjörðum, 8 í Patreksfirði, 7 í Arnarfirði og 4 í Ísafjarðardjúpi. Átta laxar veiddust utan Vestfjarða, 6 í Húnavatnsýslu og tveir í Dalasýslu.

Í fréttatilkynningu Matvælastofnunar segir ekkert frekar um uppruna eldislaxanna en vísað er til þess að 20. ágúst hefðu fundist tvö göt á kví nr. 8 á eldissvæði fyrirtækisins við Kvígindisdal í Patreksfirði.

Slátrun úr kvínni lauk 29. ágúst sl. og er áætlað að slátrun á eldissvæðinu öllu verði lokið um miðjan september.

Að sögn forsvarsmanna Arctic Sea Farm er möguleg orsök gatanna sú að starfsmenn fyrirtækisins höfðu fært fóðurdreifara í kvínni að kvíarbrún og hafa tvö lóð sem héngu neðan á fóðurdreifaranum að öllum líkindum nuddast við nótina og myndað götin. Búnaðurinn var á þeirri hlið kvíarinnar þar sem götin mynduðust á tímabilinu 8. – 20. ágúst síðastliðinn, mögulegt er að götin hafi myndast á því tímabili.

Jafnframt kom í ljós við rannsókn málsins að neðansjávareftirlit fyrirtækisins við kví nr. 8 var ekki framkvæmt frá miðjum maí sl. og þar til götin uppgötvuðust 20. ágúst sl. Aðrir netapokar eldissvæðisins voru skoðaðir með reglubundnum hætti.

Matvælastofnun segir að til Hafrannsóknarstofnunar séu enn að berast laxar sem sendir verða til erfðagreiningar. Matvælastofnun veitir frekari upplýsingar þegar niðurstöður liggja fyrir varðandi erfðagreiningu laxa og uppruna þeirra.

DEILA