Vestri: Jonathan Braeger áfram í körfunni

KKD Vestra hefur samið aftur við Jonathan Braeger fyrir komandi tímabil. Hann mun einnig þjálfa 12. flokk karla auk þess að koma að annarri þjálfun yngri flokka félagsins. Jonathan kom til Vestra undir lok síðasta tímabils og var afbragðs leikmaður og góður liðsfélagi segir í frétt körfuknattleiksdeildarinnar. Hann þjálfaði einnig yngri flokka félagsins. Næsta tímabil mun líka einkennast af áframhaldandi uppbyggingu og mikilvægt að hafa leikmenn eins og Jonathan í þeirri vegferð.

Bra­e­ger tókst fyrir tveimur árum að skora 100 stig og náði fjór­faldri tvennu í sama leikn­um er hann lék með Baskets Vils­biburg í fjórðu efstu deild í Þýskalandi.

DEILA