Útflutningsverðmæti eldisafurða aldrei meiri en 2022

Fiskeldi. Myndin er úr safni BB.

Alls voru flutt út rúmlega 43 þúsund tonn af eldisafurðum á árinu 2022, sem er met. Þar af nam útflutningur á eldislaxi 38,9 þúsund tonnum sem er um 90% af útfluttu magni eldisafurða.

Útflutningsverðmæti eldisafurða nam tæplega 49 milljörðum króna á árinu 2022 og hefur aldrei verið meira. Mikinn vöxt í útflutningi á eldisafurðum undanfarinn áratug má að langstærstum hluta rekja til eldis á laxi í sjó. Alls nam útflutningsverðmæti eldislax tæplega 40 milljörðum króna á árinu 2022, sem er 83% af útflutningsverðmæti eldisafurða á árinu.

Hluta af þessum auknu verðmætum má skýra með breytingum á gengi krónunnar.

Útflutningsverðmæti eldisafurða

Í milljörðum króna á föstu gengi ársins 2022

DEILA