Torfnes: 14 m.kr. að fjarlægja gervigras

Íþróttahúsið á Torfnesi.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt tilboð frá Verkhaf ehf að fjárhæð 13.979.400 kr. fyrir að fjarlægja gervigras á æfingavelli á Torfnesi á Ísafirði.

Upphaflega bauð Verkhaf ehf 36.570.700 kr. í verkið og var því tilboði hafnað.

Tilboðið var lagt fyrir bæjarráð á fundi þess þann 19. júní sl. og sviðsstjóra veitt heimild til að semja við verktaka á grundvelli útboðsgagna. Sviðsstjóri hélt fund með verktaka þar sem gögnin farið var yfir óvenjuleg frávik frá kostnaðaráætlun og var leiðréttingar gerðar í uppfærðu tilboði verktaka.

DEILA