Strandveiðum lýkur í næstu viku

Tálknafjarðarhöfn.

Mat­vælaráðherra hef­ur nú hafnað beiðni Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda um að bæta 4.000 tonna þorskkvóta verði bætt við á strandveiðum.

Lands­sam­band smá­báta­eig­enda sendi Svandísi Svavars­dótt­ur mat­vælaráðherra er­indið 25. júní.

Svar barst frá Mat­vælaráðuneyt­inu í gær þar sem segir „öllum veiðiheimildum fyrir fiskveiðiárið 2022/2023 hefur þegar verið ráðstafað, þ.m.t. til strandveiða. Ráðuneytið hefur ekki lagaheimild til að fallast á fyrrgreint erindi sambandsins samkvæmt þeim málflutningi sem þar kemur fram.“ 

Þar sem aðeins á eftir að veiða um 800 tonn af þorski er ljóst að strandveiðum lýkur í næstu viku.

DEILA