Strandveiðimenn ætla að mótmæla

Strandveiðisjómenn hafa boðað til mótmæla á morgun, laugardaginn 15. júlí þar sem mótmælt verður stöðvun strandveiða sem þeir segja ótímabæra. 

Það er Strandveiðifélag Íslands sem stendur fyrir mótmælunum sem fara fram á Austurvelli í Reykjavík.

Samkvæmt tilkynningu sem send hefur verið út mun Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar flytja ávarp auk þess sem tónlistarmaðurinn KK flytur nokkur lög. Loks mun Kristján Torfi og tillukarlakórinn stíga á stokk. 

Síðasti dagur strandveiða var 11. júlí og var þar með um að ræða stystu vertíðina í sögu strandveiða hér á landi.

Síðustu þrjú sumur hef­ur ráðherra aukið afla­heim­ild­ir þegar það stefndi í að kvót­inn myndi klár­ast snemma.

DEILA