Skráning á Unglingalandsmótið á Sauðárkróki komin á fullt

Nú er heldur betur farið að styttast í Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Búið er að opna fyrir skráningu á mótið og geta allir sem vilja tekið þátt.

Mótið á Króknum verður sannkölluð veisla því boðið verður upp á 27 íþróttagreinar fyrir 11-18 ára þátttakendur og geta allir skráð sig í eins margar greinar og hver og einn vill. Mótið hefst fimmtudaginn 3. ágúst og lýkur sunnudaginn 6. ágúst.

Skráning fer fram í gegnum Sportabler. Skrá þarf þátttakanda til leiks og greiða þátttökugjald áður en greinar eru valdar.“

Meðal greina sem keppt er í er biathlon, bogfimi, frisbígolf, frjálsar íþróttir, golf, grasblak, grashandbolti, hestaíþróttir og hjólreiðar, júdó, knattspyrna, kökuskreytingar og körfubolti, motocross, pílukast, skák, stafsetning, sund og upplestur.

Að auki verða í boði ýmsar kynningar og aðrar greinar sem ekki þarf að skrá sig í, svo sem á bandý og glímu, boðið upp á sandkastalagerð og badminton með LED-ljósum, vinnubúðir í Football Freestyle undir handleiðslu Andrew Henderson, sem er margfaldur heimsmeistari í greininni, badminton, zumba og fitnessfjöri, sjósund og svo má lengi telja.

Að auki eru tónleikar á hverju kvöldi og ættu því allir mótsgestir að hafa nóg að gera á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Í frétt UMFÍ af mótinu segir jafnframt að  verið sé að taka saman ítarlegri dagskrá og lista yfir tónlistarfólk og verður það kynnt til sögunnar á næstu dögum.

DEILA