Selma Margrét ráðin í leikskólastjóri á Flateyri

Selma Margrét Sverrisdóttir hefur verið ráðin sem leikskólastjóri í leikskólanum Grænagarði á Flateyri og mun hún hefja þar störf um miðjan ágúst.

Selma lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut frá Borgarholtsskóla 2012. Hún brautskráðist með BA-próf í almennum málvísindum frá Háskóla Íslands 2016 og með MT-gráðu í íslenskukennslu frá sama skóla 2023. Selma öðlaðist leyfisbréf sem kennari í apríl 2023.

Selma hefur meðal annars starfað í leikskólanum Hulduheimum á Akureyri og leikskólanum Marbakka í Kópavogi, þar sem hún kom að málörvun leikskólabarna. Sem stendur starfar hún hjá fréttastofu RÚV við málfarsráðgjöf.

DEILA