Nýir bændur óskast í loftslagsvænan landbúnað

Loftslagsvænn landbúnaður er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Markmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna búrekstrar og auka kolefnisbindingu.

Í þetta sinn er auglýst eftir umsóknum til þátttöku frá tíu búum í sauðfjárrækt eða nautgriparækt en einnig frá fimm grænmetisframleiðendum sem stunda útiræktun.

Þátttakendur þurfa að hafa áhuga fyrir að setja sér skriflega aðgerðaáætlun fyrir búreksturinn, hrinda markmiðum í framkvæmd og vera virkir þátttakendur í vegferð landbúnaðarins að loftslagsvænum lausnum.

Þátttakendur fá heildstæða ráðgjöf, fræðslu og aðhald frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML), Landgræðslunni og Skógræktinni og auk þess þátttökustyrk, styrk til efnagreininga og þegar líður á verkefnið aðgerða- og árangurstengdar greiðslur.

Verkefnastjórn áskilur sér rétt til að velja þátttakendur, verði umsækjendur fleiri en fimmtán, en öll þátttökubú þurfa að uppfylla lögbundnar skýrsluhaldskröfur. Verkefnið hefst í í september og október 2023 og er umsóknarfrestur til 20. ágúst. 

DEILA