Ganga á Lónfell

Föstudaginn 14. júlí klukkan 15:00 mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fræðslugöngu á Lónfell. Farið verður frá bílastæði á Dynjandisheiði, rétt norðan Þverdalsvatns.


Fjallið Lónfell er stundum nefnt skírnarfontur Íslands þar sem leiddar hafa verið líkur að því að hér sé komið fjallið hvaðan Hrafna-Flóki horfði þegar hann nefndi landið Ísland svo sem segir í Landnámu.

Fleiri fjöll hafa þó verið kölluð til og sýnist sitt hverjum. Það sama má segja um örnefnið Lónfell. Heitir fjallið kannski Lómfell? Útsýnið er stórkostlegt, um það eru allir sammála.

Vegalengd: 5-6 km – Hækkun: 300 m – Tími: 4 klst.
Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. Gaman að hafa sjónauka.

DEILA