Rannsóknaskipið Árni Friðriksson fór úr höfn 3. júlí til þátttöku í árlegum alþjóðlegum leiðangri.
Eitt af meginmarkmiðum leiðangurins er að meta magn og útbreiðslu makríls, kolmunna og norsk-íslenskrar síldar í norðaustur Atlantshafi að sumarlagi.
Í leiðangrinum er einnig aflað gagna sem nýtast við vöktun og fjölbreyttar rannsóknir á ýmsum þáttum vistkerfisins, frá frumframleiðni sjávar til útbreiðslu hvala.
Þetta er fjórtánda árið í röð sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í leiðangrinum ásamt skipum frá Noregi, Færeyjum og Danmörku. Yfirferðasvæði Árna er fyrir norðan, austan, sunnan og vestan landið ásamt svæði í grænlenskri landhelgi fyrir norðan Ísland. Hluti íslensku lögsögunnar fyrir austan land verður dekkuð af færeyska rannsóknaskipinu Jákup Sverri.
Líkt og áður er hægt að fylgjast með staðsetningu og ferli Árna á vef Hafrannsóknarstofnunar.
Leiðangurinn á Árna stendur í 20 daga. Gert er ráð fyrir að sigldar verði tæplega 3300 sjómílur eða um 6100 km og um 39 yfirborðstogstöðvar verða teknar á fyrir fram ákveðnum stöðum. Um borð eru 7 vísindamenn og 15 manna áhöfn.
