Ungir VG: hvalveiðar eru dýraníð

Ung vinstri græn hafa sent frá sér fréttatilkynningu og fagna því að Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hafi tekið í handbremsuna og stöðvað veiðar á langreyðum í sumar á grundvelli álits fagráðs um dýravelferð. Ung vinstri græn segja liggja fyrir „að veiðarnar eru ósamrýmanlegar lögum um velferð dýra en óréttlætanlegt er með öllu að aflífa dýr með jafn ómannúðlegum hætti og raun ber vitni. Ráðherra ber skylda til að tryggja að lögum um velferð dýra sé framfylgt og ef fyrirtæki ekki geta uppfyllt lagalegar skyldur sínar eiga þau sér ekki framtíð. Þar að auki gegna hvalir mikilvægu hlutverki í lífríki sjávar og stuðla að heilbrigði vistkerfa.“

Þá segir að ákvörðun matvælaráðherra sé aðeins tímabundin stöðvun á veiðum á langreyðum en Ung vinstri græn vona að næstu skref í málinu verði að banna hvalveiðar með öllu og „tryggja það bann í sessi með lagasetningu svo frekum körlum takist ekki að hnekkja banninu með bellibrögðum. Áhugamál eins manns má aldrei verða lífríkinu, sem og orðspori Íslands, skaðlegt.“  

DEILA