Ísafjörður – Hafnarstræti göngugata 5 daga í sumar

Vel hefur verið tekið í tillögur formanns bæjarráðs um tilraunaverkefni um göngugötu í Hafnarstræti á Ísafirði þá daga sem margir farþegar skemmtiferðaskipa eru í bænum.

Tillagan snýr að því að umferð um Hafnarstræti verði takmörkuð frá gatnamótum Hafnarstrætis og Norðurvegs, til móts við Hamraborg, frá klukkan 9-15 þá daga sem fjöldi gesta af skemmtiferðaskipum er 5000 manns eða fleiri.

Undandþegin lokuninni er umferð vegna aksturs fatlaðra og vörulosunar. Markmið lokunarinnar er að bæta bæjarbraginn og auka umferðaröryggi þá daga sem flestir gestir eru í bænum. Samkvæmt áætlun um komur skemmtiferðaskipa eru þetta fimm dagar það sem eftir lifir sumars:

  • 7. júlí
  • 3. ágúst
  • 15. ágúst
  • 18. ágúst
  • 19. ágúst

Bæjarstjóri hefur kynnt hugmyndina sérstaklega fyrir eigendum verslana og veitingastaða og öðrum rekstraraðilum í miðbænum og er fyrirhugað að funda með þeim í lok sumars til að fara yfir reynsluna af lokuninni.

DEILA