Grjóthrun á Kirkjubólshlíð og Súðavíkurhlíð

Frá Kirkjubólshlíð í morgun. Mynd: aðsend.

Tilkynnt var um grjóthun á Kirkjubólshlíð snemma í morgun. Hjá Vegagerðinni fékkst staðfest að tilkynning um grjóthrun á Kirkjubólshlíð barst um korter í 7 í morgun. Stór björg voru á veginum og önnur höfðu runnið fram í sjó. Önnur tilkynning barst skömmu síðar um grjóthrun á Súðavíkurhlíð, sem einnig þurfti að hreinsa.

Starfsmenn voru ræstir út um leið og allt grjót hreinsað af veginum í snarhasti. Umferð komst framhjá grjótinu segir í svari Vegagerðarinnar.

DEILA