Námskeið í gerð náttúrustíga

Skógræktarfélag Ísfirðinga og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa fyrir námskeiði í gerð náttúrustíga þar sem farið verður yfir grunnþætti í gerð náttúrustíga, m.a. notkun verkfæra, grjótvinnu (þrep), þrep í skóglendi og afvötnun stíga.

Mikilvægi náttúrstíga hefur aukist með fjölgun ferðmanna, þar sem hún getur komið í veg fyrir skemmdir og rof af völdum göngufólks og er aðferðafræði hennar notuð bæði af Skógræktinni og Umhverfisstofnun.

Kunnátta í gerð náttúrustíga gæti boðið upp á nokkra atvinnumöguleika, þar sem fyrir liggja óunnin verkefni sem fengið hafa styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Námskeiðið er verklegt undir stjórn Kjartans Bollasonar umhverfisfræðings, sem kennt hefur stígagerð frá árinu 2005.  Námskeiðið er kennt bæði á íslensku og ensku og eru öll velkomin sem gaman hafa af útivinnu. 

Nánari upplýsingar og skráning á vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.

DEILA