Vesturbyggð: frestað að samþykkja lóð til Landsnets

Bæjarstjórn Vesturbyggðar frestaði á fundi sínum á miðvikudaginn úthlutun lóðarinnar Járnhól 8 á Bíldudal undir tengivirki til Landsnets. Skipulags- og umhverfisráð lagði til við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar en vakti jafnframt athygli bæjarstjórnar á því að klára þarf veglagningu að lóðinni skv. deiliskipulagi.

Bæjarstjórn tók jákvætt í erindið en telur ekki forsendur til að samþykkja úthlutun lóðarinnar að svo stöddu. Var bæjarstjóra falið að setja sig í samband við Landsnet vegna veglagningar að lóðinni sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri sagði í svari við fyrirspurn Bæjarins besta að veglagning til lóðarinnar hlaupi á einhverjum tugum milljóna króna og ekki var áætlað að fara í veglagningu á árinu.

„Það þyrfti því að gera viðauka við fjárfestingaráætlun sem við viljum forðast ef hægt er. Við munum kanna hvaða aðkomu Landsnet getur haft að málinu og hvort önnur lóð á svæðinu með minni veglagningu gæti hentað þeim.“

DEILA