Strandveiðileyfi í stafrænni umsóknargátt á island.is.

Á komandi strandveiðivertíð munu umsóknir um strandveiðileyfi fara í gegnum stafræna umsóknargátt á island.is.

Sótt er um með rafrænum skilríkum og strandveiðileyfið er gert aðgengilegt í stafrænu pósthólfi umsækjanda á island.is. Í tilviki lögaðila eru það prókúruhafar sem geta sótt um strandveiðileyfi með rafrænum skilríkjum.

Opnað verður fyrir umsóknir þegar reglugerð um strandveiðar verður gefin út.

Fiskistofu er einungis heimilt að veita útgerð eða eiganda fiskiskips leyfi til strandveiða fyrir eitt skip. Áður en Fiskistofa veitir strandveiðileyfi þarf því að ganga úr skugga um að enginn eigandi eða útgerðaraðili lögaðilans eigi aðild að nema einu strandveiðileyfi.

Fiskistofa styðst við opinberar upplýsingar um eigendur og útgerðaraðila skipa hjá Fiskistofu, Samgöngustofu og skráningu raunverulegra eigenda lögaðila hjá Fyrirtækjaskrá Skattsins. Þeir sem hyggjast sækja um strandveiðileyfi eru hvattir til að huga að því að opinberar skráningar á eignarhaldi og útgerðaraðild skips séu réttar.

Afgreiðsla strandveiðileyfis getur tafist ef opinberar upplýsingar sýna ekki fram á eignarhald þeirra aðila sem eiga eða gera út skip þar sem Fiskstofa mun þurfa að taka þau tilvik til sérstakrar skoðunar með tilheyrandi gagnaöflun.

Hægt verður að sækja um með öðrum hætti en í gegnum starfræna umsóknargátt island.is en afgreiðsla slíkra umsókna getur tekið allt að fjóra daga

DEILA