Landhelgisgæsla Íslands, Samgöngustofa og Umhverfisstofnun samþykktu í gær björgunaráætlun björgunarfélagsins SMIT sem vinnur á vegum eigenda flutningaskipsins Wilson Skaw.
Samkvæmt áætluninni mun varðskipið Freyja leggjast utan á flutningaskipið, síðar í dag, og gert er ráð fyrir að vinna við að forfæra farm þess hefjist í kvöld. Þeirri vinnu verður ekki lokið fyrr en um miðja næstu viku. Þegar búið verður að færa farminn er áætlað að flutningaskipið verði dregið til hafnar á Akureyri.
Ekki liggur fyrir hvort það verði dregið af varðskipinu Freyju eða af öðru dráttarskipi,