Bók um leiklist í Bolungarvík

Á næstu dögum kemur út þriðja vestfirska leiksögubókin og nú er það leiklist í Bolungarvík sem er umfjöllunarefnið.

Stærsta leikhús landsins er í Bolungarvík eða svo sagði Lási kokkur og einsog jafnan áður sagði hann litla vitleysu.

Elfar Logi Hannesson, leikari og blekbóndi, rekur hér sögu leiklistar í Bolungarvík allt frá landnámi til listlífs á verbúðatímanum og til hins merka leiklífs í Víkinni á síðustu öld og fram á okkar tíma.

Það eru engar ýkjur að segja að mörg kraftaverkin hafa verið unnin í hinu bolvíska leikhúsi enda ekki að ástæðulausu að Bolungarvík er nefnt af gárungunum stærsta leikhús landsins.

Þetta er þriðja bókin í vestfirsku leiksögu útgáfu Kómedíuleikhússins. Áður hafa komið út Leiklist á Bíldudal, 2015, og Leiklist og list á Þingeyri, 2020.

Bókina má fá með því að senda póst á komedia@komedia.is og svo mun hún fást í öllum betri bókabúðum.

DEILA