Blak – Vestri í undanúrslit Íslandsmótsins

Úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í blaki stendur nú sem hæst og er lið Vestra þar í eldlínunni.

Fyrstu leikir úrslitakeppninnar fóru fram fyrir páska, en í þeim höfðu Vestramenn betur gegn bæði Stálúlfi og HK.

Nú um helgina háðu þeir svo tveggja leikja einvígi við Þrótt Fjarðabyggð um sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins og fóru báðir leikirnir fram í Reykjavík. Sá fyrri var spilaður á föstudaginn og þar hafði Vestri sigur 3-0. Seinni leikurinn var spilaður á sunnudag og aftur voru Vestramenn sterkari,  lönduðu 3-1 og tryggðu sér um leið sæti í undanúrslitunum.

Undanúrslitin hefjast strax í dag og það er óhætt að segja að verkefnið sem þar bíður sé talsvert krefjandi því mótherninn er enginn annar en lið Íslands- og bikarmeistara Hamars frá Hveragerði.

Lið Hamars er eitt það allra besta sem sést hefur í íslensku blaki um langt skeið og hefur liðið í raun einokað alla titla sem í boði hafa verið undanfarin ár. En nú er vonandi komið að því að þeir þurfi að játa sig sigraða.

Einvígi Vestra og Hamars hefst í Hveragerði í kvöld en síðan mætast liðin aftur á Ísafirði fimmtudaginn 20. apríl.

DEILA