Tálknafjörður: bruninn í Norður Botni upplýstur

Frá brunanum í nýbyggingu Arctic Smolt í Norður-Botni

Lögreglan á Vestfjörðum telur að orsakir brunans í nýbyggingu seiðaeldisstöðvar Arctic Fish á Tálknafirði séu upplýstar. Í tilkynningu frá embættinu segir að rannsóknardeild lögreglunnar á Vestfjörðum hafi notið aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsóknina.

Iðnaðarmenn voru við vinnu í byggingunni þar sem þeir voru að vinna við að þétta steypta veggi. Til þess notuðu þeir m.a. gas og opinn eld. Ljóst þykir að glóð hafi borist frá opna eldinum í plastteninga sem þarna voru ekki langt frá. Plastteningarnir reyndust innihalda mjög eldfimt efni og varð mjög fljótt mikill eldur laus í byggingunni og báru tilraunir starfsmanna til að slökkva eldinn ekki árangur.

Enginn var með réttarstöðu sakbornings við rannsókn málsins.

Þann 23. febrúar kom upp eldur í nýbyggingu fiskeldisstöðvar Arctic Smolt hf í botni Tálknafjarðar. Mikill eldur varð laus í húsnæðinu og stóð slökkvistarf yfir í u.þ.b. 10 klukkutíma.

DEILA