Strandveiðar eitt skref áfram, tvö til baka

Halla Signý Kristjánsdóttir, alþm.

Matvælaráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að hverfa aftur til þess fyrirkomulags strandveiða sem var hér fyrir árið 2018. Það er að segja að aflaheimildum sem ráðstafað er til strandveiða verði skipt upp í fjögur landssvæði. Auk þess er lagt upp með að aflaheimildir hvers landssvæðis og tímabils geti verið innan sama svæðis flutt yfir á næsta tímabil innan fiskveiðiársins. Það þýðir að hvert svæði getur geymt þær aflaheimildir sem ekki tókst að ná á land í þeim mánuði sem liðinn er yfir á næsta mánuð.

Mikil vinna var lögð í þær breytingar sem gerðar voru á kerfinu árið 2018 þar sem landið varð eitt svæði. Helstu breytingar sem þá voru gerðar voru að veiðidagar urðu bundnir við 12 daga í hverjum mánuði á hvern bát þessa fjóra mánuði strandveiðitímabilsins og gilti það meðan hámarksafla væri náð. Einnig var ákvæði sem heimilaði strandveiðibátum að landa ufsa sem VS-afla og sá afli myndi þá ekki teljast til viðmunar inn í hámarksafla. Þær breytingar sem voru gerðar voru með stuðningi landssambands smábátaeiganda en vissulega voru háværar raddir um að þetta yrði dauðadómur yfir kerfinu þar sem bátar myndu flykkjast á A- svæðið til þess að veiða þar sem það gæfi meira af sér og heimildir tímabilsins myndu nást strax á fyrstu tveimur mánuðunum.

Breytingar breytinganna vegna

Smábátasjómenn hafa eðil máls samkvæmt mikla skoðun á kerfinu, ekki bara tengt svæðum heldur einnig á flestum útfærslum þess. En svarið við þeirra athugasemdum ætti þó ekki að vera að kollvarpa núverandi kerfi og í raun að taka þá áhættu að markmið kerfisins í heild sé sett í hættu.

Áform matvælaráðherra er að hverfa til fyrra horfs sem veldur í raun meiri misskiptingu milli landssvæða en núverandi kerfi bíður upp á.  Ekki er útfært í frumvarpinu hvernig aflaheimildum verði skipt milli landssvæða né hvaða aðferðum verður beitt við að reikna það út. Erfitt getur reynst að finna út hvaða magn á að fara inn á hvert svæði.

Áður en breytt var úr skiptingu yfir í einn pott gat mismunur á milli svæða verið allt frá 6 dögum en á öðrum 20 dagar og nú hefst aftur kapphlaupið á miðin með ófyrirséðum afleiðingum.

Útkoman alltaf háð óvissu

Árið 2020 tók Byggðastofnun út þær breytingar sem voru gerðar tveimur árum fyrr. Almennt voru svarendur ánægðir með kerfið og þær breytingar sem höfðu verið gerðar. Vestlendingar og Vestfirðingar voru hvað ánægðastir með breytingarnar sem gerðar höfðu verið á strandveiðikerfinu, en Norðlendingar og Austfirðingar síður ánægðri þó meirihluti þeirra taldi þó breytingar á kerfinu til bóta. Ýmsar ábendingar komu fram til þess að bæta kerfið enn betur. Nú hefur matvælaráðherra skipað samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu og hefur hún ekki lokið vinnu sinni og því er það úr takt að koma fram með þetta frumvarp á meðan sú vinna stendur yfir.

Að vori er ávallt óvissa hvernig strandveiði komi til með að verða að sumri. Ytri aðstæður er ekki hægt að festa í lög. Veðurfari, gæftum og fiskgegnd væri gott að geta stýrt en það er því miður ekki í boði. Nú ætti að vera að fara í hönd sjötta sumarið eftir að þessa breytingar voru gerðar. Farsælast væri að í haust væri tekið út hvernig til hafi tekist og hvað mætti betur fara í stað þess að rykkja í bakkgírinn án þess að stíga á kúplinguna.

Halla Signý Kristjánsdóttir

Höfundur er þingmaður Framsóknar

DEILA