Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2023

Frá veitingu samfélagsstyrkja 2020.

Orkubúið vill með samfélagsstyrkjunum sýna stuðning í verki við þá aðila og félög sem sinna ýmsum samfélagsmálum á Vestfjörðum.  Þar getur verið um að ræða ýmiss konar starfsemi eða félagasamtök, s.s. björgunarsveitir, íþrótta- og æskulýðsstarf, menningarstarfsemi og listir eða einhver önnur áhugaverð verkefni sem skipta máli fyrir vestfirskt samfélag.

Rétt er að minna á að leitast verður við að styrkja verkefni vítt og breitt um Vestfirði.

Verkefnin þurfa að uppfylla þau skilyrði að þau séu til eflingar vestfirsku samfélagi, en að öðru leyti er umsækjendum gefnar nokkuð frjálsar hendur varðandi verkefni. 

Miðað er við að einstakar styrkveitingar geti verið á bilinu 50 til 300 þúsund kr.

Umsóknum skal skilað rafrænt með því að fylla út þetta rafræna eyðublað. 

Umsóknarfrestur er til og með 21. mars 2023.

DEILA