Mikið annríki hjá slökkviliði Tálknafjarðar

Frá brunanum í nýbyggingu Arctic Smolt í Norður-Botni

Slökkvilið Tálknafjarðar hefur staðið í ströngu síðustu vikurnar og þurft að takast á við þrjú stór verkefni í samstarfi við slökkviliðin á Patreksfirði og Bíldudal.

Fyrir tveimur vikum þurfti að bregðast við flóði í Tunguá og mikil vinna var við að dæla vatni af hafnarsvæðinu.

Í síðust viku varð stórbruni í nýbyggingu Arctic Smolt í Norður-Botni þar sem viðbragðsaðilar, með slökkviliðin fremst í flokki, unnu stórvirki við að bjarga fólki og verðmætum eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum.

Nýjasta útkallið var svo vegna elds sem kom upp í heimahúsi á Tálknafirði og þar var slökkvilið komið á vettvang einungis sjö mínútum eftir að það var kallað út. Þetta snögga viðbragð og hárrétt vinnubrögð slökkviliðsfólks á vettvangi varð til þess að hratt og vel tókst að ráða niðurlögum elds sem var búinn að læsa sig í eldhúsinnréttingu.

Íbúar og það fólk sem getu átt allt sitt undir faglegum vinnubrögðum viðbragðsaðila er sannarlega þakklátt á svona stundum eins og sjá má á bókun sveitarstjórnar Tálknafjarðarhrepps frá fundi hennar sem fór fram 28. febrúar 2023.

DEILA