Lífið verður einfaldara

Á vefsíðu Stjórnarráðsins er sagt frá því að liður í því að einfalda líf fólks hér á landi og bæta stafræna þjónustu hins opinbera er aukin upplýsingagjöf og aðgengi að þjónustu gegnum Ísland.is, miðlæga upplýsinga- og þjónustugátt hins opinbera.

Að undanförnu hefur þeim stofnunum sem velja að flytja efni sitt á Ísland.is fjölgað til muna og verða þær orðnar um 30 talsins í lok þessa árs, auk þess sem nokkrir verkefnavefir hafa farið á vefinn.

Markmið stofnana með flutningi vefsvæða Ísland.is er bætt þjónusta og aðgengi sem og að ná fram hagræði.

Allt efni er unnið samkvæmt efnisstefnu Ísland.is og uppfært í takti við þarfir notenda. Þá eru ýmis tæknileg atriði, svo sem skalanleiki eftir tækjum, vefþula, vefþýðing og fleira innbyggt í Ísland.is og þess gætt að aðgengismál séu ávallt eins og best verður á kosið.

Stofnanir sem eru með vefi á Ísland.is halda úti og uppfæra allt efni sitt og þá þjónustu sem er í boði, en rekstur tækniumhverfis er í höndum Stafræns Íslands. Þar er unnið að því að öll opinber þjónusta verði aðgengileg á Ísland.is.

Aðsókn að Ísland.is hefur aukist hratt að undanförnu. Á síðasta ári jókst hún um 78% á frá árinu áður og fór fjöldi flettinga á vefnum yfir 10 milljónir.

DEILA