Haraldur Benediktsson alþm hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar

Oddvitar allra flokka í bæjarstjórn (Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og frjálsir) ásamt tilvonandi bæjarstjóra Akraneskaupstaðar. Valgarður L. Jónsson, Haraldur Benediktsson, Líf Lárusdóttir og Ragnar B. Sæmundsson. Mynd: Akraneskaupstaður.

Haraldur Benediktsson hefur síðastliðin 10 ár verið alþingismaður fyrir Norðvesturkjördæmi. Hann hefur m.a. setið í atvinnuveganefnd, fjárlaganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Haraldur hefur verið stjórnarformaður Orkusjóðs og veitt stjórn Fjarskiptasjóðs formennsku á síðastliðnum árum. Haraldur hefur að auki verið formaður fjölda nefnda og stýrihópa á vegum stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands. Meðal þess sem hann hefur beitt sér dyggilega fyrir er ljósleiðaravæðing í dreifbýli.

„Haraldur hefur þekkingu og reynslu sem við bæjarfulltrúar erum fullviss um að muni nýtast vel í starfi bæjarstjóra, Akraneskaupstað og samfélaginu hér á Akranesi til heilla. Alger einhugur ríkir í bæjarstjórn um ráðningu Haralds og við erum þess fullviss að hann muni veita bæjarfélaginu öfluga forystu á áframhaldandi uppgangstímum bæjarins,“ segir Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness.

Haraldur segir Akranes vera eitt mest spennandi sveitarfélag landsins og það sé sannarlega heiður að vera trúað fyrir starfi bæjarstjóra.  „Ég hlakka til að takast á við verkefnin með öflum hópi bæjarstjórnar og starfsmanna Akraneskaupstaðar.“

Haraldur er bóndi á Eystri Reyn í Akraneskaupstað og rekur þar kúabú.

Bæjarstjórn Akraness hlakkar til samstarfsins við Harald en hann mun hefja störf á næstu vikum segir í fréttatilkynningu.

DEILA