Pósturinn lokar afgreiðslum í Bolungavík og Súðavík

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins.

Pósturinn hefur sagt upp samningi við bæjarstjórn á báðum stöðum og þar af leiðandi verður póstafgreiðslu hjá samstarfsaðilum lokað en þess í stað verður lögð áhersla á að veita póstþjónustu með öðrum hætti segir í fréttatilkynnngu.

Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins, segir að lögð sé áhersla á að þróa þjónustuna í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda. „Dregið hefur úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi er lagt upp úr að þróa annars konar lausnir. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru þeir sem nota póstbox auk þess sem í dag er hægt að póstleggja pakka í póstbox. Flest póstboxin eru aðgengileg allan sólarhringinn og eru einföld í notkun.“ segir Þórhildur.

Stafræn umbreyting kallar á nýjar nálganir í þjónustu og við verðum að bregðast við því. Um leið ber okkur beinlínis skylda til að leita hagkvæmra leiða í rekstrinum og því eru breytingar sem þessar óhjákvæmilegar. Pósturinn hefur lagt höfuðáherslu á að endurskipuleggja þjónustu fyrirtækisins með viðskiptavini í forgrunni. Hluti af þeirri vegferð eru fleiri sjálfvirkar afhendingarleiðir í aukinni nálægð við viðskiptavini. „Markmið okkar er ávallt að fjölga afhendingarstöðum en það er okkur mikið kappsmál að bæta við póstboxum í helstu þéttbýliskjarna á landsbyggðinni. Það skiptir máli að bjóða upp á þétt dreifinet móttöku og afhendingastaða til að vera sem næst viðskiptavinum okkar, segir Þórhildur.

Við munum setja upp póstbox í Bolungarvík en það mun verða staðsett við Krambúðina. Auk póstboxa munu bréfberar halda áfram að sjá um dreifingu. Þeir sem það kjósa geta sem fyrr óskað eftir heimsendingu, póstbílinn verður á ferðinni og viðskiptavinir geta haft samband við bílstjórann í gegnum síma. Okkar besta fólk er klárt á útkeyrsluvaktinni til að afhenda pakka heim að dyrum 5 daga vikunnar. Fyrir þá sem eru á ferðinni, og vilja nýta sér aðra afgreiðslustaði má sjá þá á vef Póstsins.

Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri.

Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri segir að 6 mánaða uppagnarfrestur sé og breytingin taki gildi frá og með 1. september. Hann segir að sveitarfélagið hafi veitt þjónustuna síðustu ár fyrst í samstarfi með Landsbankanum og síðar Póstinum þegar Landsbankinn lokaði útibúi sínu í Bolungavík og lagt sig fram um að veita framúrskarandi þjónustu. Bolungavík hafi greitt með þjónustunni. Jón Páll segir breytinguna vera fyrst og fremst hagræði fyrir Póstinn en ekki fyrir íbúana. Fyrir þá sé breytingin óhagræði og bendir á að fjarri því sé að allir pakkar komist í dropbox. Íbúar í Bolungavík og víðar á landsbyggðinni séu að verða vanir því að taka á sig þjónustuskerðingu og hagræðingu.

DEILA