Vegum lokað á Vestfjörðum í kvöld

Skjáskot af vefmyndavél í Breiðadal.

Kl 20 í kvöld verður lokað veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur og um Kirkjubólshlíð lokað. Í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum segir að veginum sé lokað af öryggisástæðum. Ástæðan er að aukin snjóflóðahætta er þar og ekki ráðlegt að vegurinn sé opinn fyrir almennri umferð í kvöld eftir að vegaþjónustu Vegagerðarinnar lýkur. Athugað verður með opnun á morgun.

Þá verður einnig lokað ekki seinna en kl 20 í kvöld Flateyrarvegi af öryggisástæðum. Athugað verður með opnun vegarins uppúr kl.07:00 í fyrramálið.

Nánari upplýsingar um það verður hægt að afla í upplýsingasíma Vegagerðarinnar, 1777, eða á heimasíðu hennar.

Flestir fjallvegir á Vestfjörðum eru lokaðir vegna hvassviðris og ofankomu. Lögreglan hvetur vegfarendur til að athuga með veður og færð áður en lagt er af stað milli byggðakjarna.

Varðskipið Þór verður viðbragðsaðilum til halds og trausts á Dýrafirði meðan þetta gengur yfir.

DEILA