Togari í vanda út af Straumnesi

Um kl. 0400 í nótt hafði skipstjóri togarans Hrafns Sveinbjarnasonar samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að skipið væri aflvana um 50 sjómílur norð-norð-vestur af Straumnesi. Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Haft var samband við varðskipið Freyju sem þá var á leið inn á Patreksfjarðarflóa en fyrirhugað var að skipið yrði hluti af minningarathöfn vegna snjóflóðsins sem féll á Patreksfjörð fyrir 40 árum síðan og til stendur eftir hádegi í dag.

Varðskipið Freyja hélt af stað áleiðis til togarans Hrafns Sveinbjarnarsonar og er áætluð koma skipsins að togaranum um kl.1100. Reynt verður að aðstoða vélstjóra togarans við að koma vélum í lag en ef það heppnast ekki þá draga hann áleiðis til Ísafjarðar. Sæmilegasta veður er eins og er þar sem Hrafn Sveinbjarnason er staddur en spáð er að veður versni þegar líða tekur á daginn.

Það vill hinsvegar svo til að forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, ásamt bílstjóra embættisins er staddur um borð í varðskipinu Freyju. Hann var sóttur til Grundarfjarðar í gærkvöldi en varðskipið var við útskipti á öldumælisdufli á Breiðafirði í gær og ákveðið í samráði við forsetann og forsetaembættið að hann sigldi með varðskipinu til Patreksfjarðar þar sem að tvísýnt var um landleiðina til að komast á á minningarathöfnina á Patreksfirði. Forsetinn var vakinn upp af værum svefni og rætt um hvort að hann vildi að reynt yrði að setja hann í land en vildi hann ekki að aðgerðir varðskipsins tefðust vegna þess og siglir því með skipinu. Að sögn skipherra varðskipsins Freyju er forsetinn orðinn sjóaður og fylgist vel með gangi mála.

DEILA