Kvenfélagið Hvöt 110 ára – jólaball 29.des.

Það var þann 29. desember 1912 sem kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal var stofnað, fagnar félagið því 110 ára afmæli í ár.  Á afmælisdaginn okkar bjóðum við ykkur á jólaball í barnaskólanum í Hnífsdal. Jólaballið er vísir að stofnun kvenfélagsins og því tilefni til að slá upp jólaballi með kaffiveitingum og góðum gestum sem gleðja börnin.

Jólaballið hefst kl. 16:30.

Við hvetjum alla til að kíkja við og fá sér kaffisopa, húsið verður opið frá 16:00-18:00.

Hlökkum til að sjá ykkur

Kveðja

Kvenfélagskonur í Hvöt

DEILA